Marfló fannst hringinn í kringum norðurskautið

Deila:

Ný rannsókn sem birtist í vísindaritinu Deep Sea Research Part II sýnir að marflóategundin Amathillopsis spinigera lifir hringinn í kringum norðurheimskautið og þolir afar breytileg búsvæði. Þetta kemur fram á vef Hafró.

Tegundin fannst bæði á grunnum svæðum, um 10 metra dýpi, og niður á rúmlega 3.100 metra dýpi, sem er mun meira dýptarbil en áður var þekkt. Erfðarannsóknir sýna að nánast enginn erfðafræðilegur munur er á einstaklingum frá ólíkum hafsvæðum, allt frá Framsundi til Tjúktahafs, sem bendir til pólhverfrar útbreiðslu.

Rannsóknin byggir á sýnum sem safnað var með ísbrjótnum Polarstern og unnin voru í samstarfi við Senckenberg-stofnunina í Þýskalandi. Niðurstöðurnar víkka verulega út þekkingu á útbreiðslu og lífsháttum tegundarinnar í Norður-Íshafinu.

Deila: