Þorskígildi byggja á aflaverði

Í svari Fiskistofu við fyrirspurn Fiskifrétta kemur fram að þorskígildi séu reiknuð út frá verði við sölu afla úr skipi, en ekki útflutningsverðmæti.
Tilefnið er gagnrýni Brims, sem bendir á að þorskígildi 10 þúsund tonna af grálúðu séu næstum þau sömu og 90 þúsund tonna af makríl, þrátt fyrir að verðmæti makríls sé margfalt meira.
Óttar Gautur Erlingsson, deildarstjóri hjá Fiskistofu, segir að útreikningarnir taki ekki tillit til verðbreytinga eftir sölu og að nokkur seinkun sé á stuðlunum. Þorskígildisstuðlar byggja á aflaverðmæti frá 1. maí næstliðins árs til 30. apríl.
