LS gerir skýrar kröfur til stjórnvalda

Deila:

Aðalfundur Landssambands smábátaeigenda, sem haldinn var 16. og 17. október, samþykkti fjölda ályktana um sjávarútvegsmál. Þar er meðal annars boðið fram fjögurra milljarða króna greiðsla til stjórnvalda fyrir 30 þúsund tonn af þorski. Fundurinn skorar á stjórnvöld að tryggja 48 daga strandveiðar á yfirstandandi fiskveiðiári og lýsir miklum vonbrigðum með að strandveiðum hafi verið hætt 16. júlí síðastliðið sumar þrátt fyrir fyrirheit um annað. Þá er þess krafist að kvótasetningu grásleppu verði hætt og fyrra fyrirkomulag leyfa tekið upp á ný.

LS leggur til að almennum byggðakvóta verði úthlutað sem ívilnun við löndun fyrir línu- og handfærabáta undir 30 brúttótonnum, auk þess sem meiri afli fari til strandveiða til að styrkja dreifðar byggðir. Félagið vill að byggðaaðgerðir í þorski verði 8 prósent í stað 5,3 prósenta og að framlag útgerða verði lækkað í 4 prósent, sem bætt verði með álagi á ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar.

Fundurinn krefst þess að línuívilnun verði virkjuð þegar í stað og gildi frá 1. september, eins og verið hefur frá upphafi hennar árið 2003, og að hún nái til allra dagróðrabáta undir 30 tonnum. Lagt er til að ívilnunin verði 30 prósent á landbeitta línu og 20 prósent á uppstokkaða línu í landi.

Í ályktunum fundarins er jafnframt þess krafist að flotvarpveiðar verði bannaðar við veiðar á loðnu, síld og makríl í íslenskri landhelgi vegna skaðsemi veiðarfærisins fyrir grásleppustofninn. Bent er á að við flotvarpveiðar á síðasta fiskveiðiári hafi grásleppa í lönduðum afla numið 125 tonnum, sem sé mun meira en úr botntrolli, og að skipstjórar loðnuskipa hafi sjálfir gagnrýnt notkun flotvarpu.

Þetta var fyrsti aðalfundur undir forystu nýs formanns, Kjartans Páls Sveinssonar, sem tók við af Arthur Bogasyni eftir langt starf hans í forystu Landssambandsins.

Deila: