Síldarvinnslan sendir jákvæða afkomuviðvörun

Deila:

Síldarvinnslan hf. hefur sent tilkynningu til kauphallarinnar þar sem fram kemur að afkoma ársins 2025 verður betri en áður var gert ráð fyrir.

Í upphaflegri áætlun félagsins var gert ráð fyrir að EBITDA-hagnaður samstæðunnar yrði á bilinu 78 til 84 milljónir bandaríkjadala, en samkvæmt endurmati stjórnenda vegna níu mánaða uppgjörs er nú gert ráð fyrir að hann verði á bilinu 96 til 104 milljónir dala.

Félagið segir að ástæður betri afkomu séu hærra afurðaverð og almennt góður rekstur á árinu. Síldarvinnslan mun birta uppgjör sitt fyrir fyrstu níu mánuði ársins 27. nóvember.

Deila: