Stórfelld áform um uppbyggingu

Deila:

Mikil uppbygging er fyrirhuguð í Bolungavíkurhöfn til að mæta aukinni verðmætasköpun í sjávarútvegi. Þetta kemur fram í frétt á vef Bæjarins Besta. Þar segir að landaður afli í höfninni hafi numið um 35 þúsund tonnum á ári eftir að laxeldi hófst í héraðinu, en áður hafi aflinn verið á bilinu 15 til 20 þúsund tonn. Hafnarstjórn Bolungavíkurkaupstaðar hefur afgreitt málið til bæjarstjórnar og að því er fram kemur í fréttinni eru stórfelldar framkvæmdir nauðsynlegar svo hægt sé að taka á móti stærri skipum sem tengjast eldisstarfsemi. Til stendur meðal annars  að lengja viðlegukant um 200 metra.

Áætlaður heildarkostnaður framkvæmdanna er um þrír milljarðar króna með virðisaukaskatti, þar af rúmlega 800 milljónir sem falla á höfnina sjálfa. Breikka þarf innsiglinguna, dýpka og flytja svokallaðan Grundargarð svo höfnin geti sinnt hlutverki sínu í nýjum aðstæðum. Í fréttinni segir einnig að afli eldislax hafi haft afgerandi áhrif á þessa þróun og að 20 þúsund tonn af eldislaxi geti gefið um 20 milljarða króna í útflutningstekjur.

Deila: