Allur rekstur kominn á fullt

Deila:

Starfsfólk Síldarvinnslusamstæðunnar kom til landsins í gær og í fyrradag að lokinni árshátíðarferð til Sopot í Póllandi, en ferðin hefur verið sögð bæði eftirminnileg og vel heppnuð. Strax að henni lokinni tók daglegt líf í samstæðunni á ný við og nú er nær allur rekstur kominn á fullt.

Öll skip samstæðunnar eru farin til veiða, að Barða NK undanskildum, en hann mun líklega halda til síldveiða fyrir vestan land á næstu dögum. Í Grindavík hófu bæði frystihús og salthús Vísis vinnslu í dag, en í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað er beðið eftir síld úr veiðum fyrir vestan.

Togararnir Bergey VE og Vestmannaey VE, sem gerðir eru út af Bergi – Huginn í Vestmannaeyjum, héldu til veiða í gær og eru báðir að toga á Víkinni. Frá Seyðisfirði hélt Gullver NS til veiða á mánudagskvöld og er nú að veiðum á Austfjarðamiðum.

Línuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, voru við veiðar suðaustur af landinu í morgun og krókaaflamarksbáturinn Fjölnir GK var kominn til veiða frá Skagaströnd. Þá er Jóhanna Gísladóttir GK að karfaveiðum í Víkurálnum.

Frystitogarinn Blængur NK hélt til veiða frá Neskaupstað, hóf veiðarnar á Tangaflakinu en var kominn á Gerpisgrunn í morgun. Beitir NK og Börkur NK eru við síldveiðar fyrir vestan land þar sem veiðarnar hafa farið rólega af stað í Jökuldýpinu og Kolluálnum.

Að sögn fyrirtækisins sýnir þetta vel hversu fljótt allt starf í samstæðunni kemst í eðlilegt horf eftir árshátíðarferðina – og að sjómenn og starfsfólk hafi mætt til leiks af krafti og góðum móral.

Deila: