Bjóða 4 milljarða í 30 þúsund tonn

Deila:

Landssamband smábátaeigenda (LS) hefur formlega lagt fram tilboð til ríkisstjórnar Íslands um að leigja 30 þúsund tonn af þorski sem veiddur er utan strandveiða. Tilboðið var samþykkt á aðalfundi sambandsins sem haldinn var 16. og 17. október síðastliðinn.

Samkvæmt tillögunni hyggst LS greiða fjóra milljarða króna fyrir aflann. Greiðslan færi fram með því að draga upphæðina frá bátum við löndun á fiskmarkaði eða í gegnum fiskmarkaðskerfið. Markmiðið er að tryggja að aukin hlutdeild smábáta í þorskveiðum nýtist fyrst og fremst þeim sem raunverulega stunda handfæraveiðar, án þess að grafa undan öðrum þáttum fiskveiðistjórnarkerfisins.

Að sögn forsvarsmanna LS er tilboðið liður í því að efla smábátaútgerð og skapa meira jafnvægi í kerfinu. Þeir segja að með þessu mætti tryggja fjölbreyttari þátttöku í veiðum og stuðla að betri nýtingu auðlindarinnar.

Á aðalfundi sambandsins kom fram að LS vilji að stjórnvöld taki málið til skoðunar án tafar og leggi mat á hvort tilboðið geti orðið grundvöllur að nýrri nálgun í skiptingu aflaheimilda.

Deila: