Ný Cleopatra 40 fyrir gildruveiðar við Skotland

Deila:

Trefjar ehf. afhentu á dögunum nýjan Cleopatra bát til Norður-Uist eyju í Skotlandi. Uist eyjar er hluti af Suðureyjaklasanum, norðvestur af Skotlandi. Eigandi og skipstjóri bátsins er Iain MacDonald. Báturinn hefur fengið nafnið Two Daughters og er af gerðinni Cleopatra 40. Hann verður gerður út frá Norður-Uist árið um kring og og hefur þegar hafið veiðar.

Two Daughters er útbúinn fyrir gildruveiðar á leturhumri og töskukrabba. Reiknað er með að báturinn afkasti 1000-1200 humargildrum á dag. Lestin er útbúin með sprinklerkerfi til að halda lífi í aflanum um borð.

Aðalvélin er FPT C13 tengd við ZF 325IV gír. Rafstöð bátsins er af gerðinni Nanni 9kW. Siglingatæki eru frá Furuno/MaxSea/Simrad. Báturinn er með vökvadrifinni bógskrúfu sem er tengd við sjálfstýringu hans. Báturinn er útbúinn með Seakeeper stöðugleikabúnaði til þæginda fyrir áhöfn en á þennan hátt er dregið úr veltu um allt að 80%.

Rými er í lest fyrir 15 stk. 380 lítra kör. Í lúkar eru kojur fyrir þrjá til fjóra auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofni og ísskáp.

Öryggisbúnaður bátsins er frá Viking.

Deila: