41 tonn af drauganetum fjarlægð

Umfangsmikið verkefni til hreinsunar á drauganetum í Limafirði í Norður-Danmörku hefur þegar skilað umtalsverðum árangri. Frá því í vor hafa um 41 tonn af yfirgefnum og týndum veiðarfærum verið fjarlægð úr firðinum, og um 75 prósent svæðisins þegar kortlögð og hreinsuð. Aðgerðin er styrkt af Sjávarútvegs- og fiskveiðasjóði Evrópu og miðar að því að fjörðurinn verði að fullu hreinsaður fyrir sumarið 2026.
Drauganet, sem eru yfirgefin eða týnd fiskinet úr sterku plasti eins og næloni, geta haldið áfram að veiða dýr löngu eftir að þau eru yfirgefin. Þau fanga krabba, fiska, sjófugla og jafnvel sjávarspendýr, auk þess sem þau brotna niður í örplast sem berst inn í fæðukeðjuna. Í Limafirði hafa netin skapað alvarlega hættu fyrir lífríki, þar á meðal sjávargrasbotna, kræklingabanka og grunnrif sem þjóna sem uppeldisstöðvar margra sjávartegunda.
Verkefnið, sem stýrt er af Limafjarðarráðinu, byggir á nánu samstarfi við sjómenn í heimabyggð. Atvinnu- og tómstundaveiðimenn geta tilkynnt um týnd veiðarfæri í gegnum stafrænt tilkynningakerfi á netinu sem gerir hreinsunarskipum og köfurum kleift að vinna markvissar.
„Kerfið hefur umbreytt því hvernig við bregðumst við drauganetum – það gerir aðgerðir okkar hraðari, snjallari og markvissari,“ segir Anne Svenningsen, verkefnastjóri hreinsunarinnar.
Á meðan stærri skip draga net úr dýpri sjó eru drónar og smábátar notaðir á grunnsvæðum til að finna net sem ógna viðkvæmum vistkerfum. Jafnframt er lögð áhersla á forvarnir; sjómönnum ber nú lagaleg skylda til að tilkynna öll týnd veiðarfæri til dönsku fiskistofunnar.
Að sögn verkefnastjórnarinnar er markmiðið að Limafjörður verði nær alveg laus við drauganet árið 2026. Langtímaárangur verkefnisins mun þó ráðast af stöðugu eftirliti og ábyrgri hegðun í framtíðinni.
Myndin er úr safni



