„Minnka sóun og auka endurvinnslu“

Samherji hf. hefur gefið út árs- og sjálfbærniskýrslu sína fyrir árið 2024 þar sem fjallað er um ófjárhagslega þætti í starfsemi félagsins. Markmiðið með skýrslunni er að miðla upplýsingum um áhrif starfseminnar á umhverfi, samfélag og stjórnarhætti auk þess að veita yfirlit yfir rekstur samstæðunnar.
Skýrslan nær yfir starfsemi Samherja hf. og dótturfélaga á árinu 2024 og var unnin með hliðsjón af Global Reporting Initiative (GRI) stöðlunum og UFS-leiðbeiningum Nasdaq. Samherji hefur jafnframt undirritað samfélagsstefnu Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi sem byggir á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og birtir þau markmið sem hafa mesta þýðingu í rekstri félagsins.
Baldvin Þorsteinsson, forstjóri Samherja hf., segir í ávarpi sínu í skýrslunni að sjálfbærni sé órjúfanlegur hluti stjórnarhátta fyrirtækisins. „Félagið hefur sett sér þau markmið að draga úr olíunotkun og minnka þar með kolefnisspor, auka hagkvæmni í orkunýtingu, standa vörð um nytjastofna með sjálfbærum fiskveiðum, verja líffræðilega fjölbreytni þar sem félagið starfar, minnka sóun og auka endurvinnslu,“ segir hann.
Baldvin bendir á að miklar breytingar hafi orðið á regluverki um sjálfbærniskýrslugerð í Evrópu og að aðeins stærstu fyrirtæki muni í framtíðinni falla undir nýjar reglur ESB. Samherji hf. sé ekki meðal þeirra, en hyggist engu að síður halda áfram að birta sjálfbærniskýrslu. „Óháð innleiðingu reglnanna hefur Samherji ákveðið að halda sig við þá stefnu að birta sjálfbærniupplýsingar í skýrsluformi svo almenningur, viðskiptavinir og aðrir haghafar hafi aðgang að ófjárhagslegum upplýsingum um félagið til viðbótar við þær upplýsingar sem birtar eru í ársreikningi,“ segir hann ennfremur.
