Sjávarútvegsráðefnan hefst

Sjávarútvegsráðstefnan 2025 fer fram í Hörpu dagana 6.–7. nóvember og ber yfirskriftina „Róum í sömu átt! – Verðmætasköpun og samkeppnishæfni í íslenskum sjávarútvegi.“
Ráðstefnan hófst klukkan 10 í morgun, fimmtudag, og lýkur á morgun, föstudag, klukkan 15.15.
Á ráðstefnunni fer fram fjöldi áhugaverðra erinda sem tengjast framtíð, nýsköpun og verðmætasköpun í sjávarútvegi. Þar koma saman fulltrúar fyrirtækja, stofnana og stjórnvalda til að ræða stöðu og tækifæri greinarinnar.
Í ár er bryddað upp á nýjung – lifandi hlaðvarp í beinni útsendingu þar sem rætt verður við fjölbreyttan hóp fólks úr sjávarútvegi og tengdum greinum, auk stjórnmálamanna og sérfræðinga.
Þeir sem ekki komast á staðinn geta fylgst með beinu streymi frá ráðstefnunni á YouTube, þar sem bæði erindi og hlaðvarpsviðtöl verða í útsendingu alla daga ráðstefnunnar.



