Herinn sökkti freigátu á dýrmætum fiskimiðum

Norski herinn sætir nú gagnrýni eftir að freigátunni KNM Bergen var sökkt í september á verðmætum fiskimiðum við Sveinsgrunn, rétt undan Andøya og Senja. Um var að ræða aðgerð sem var hluti af umfangsmikilli heræfingu í Andfirði. Samkvæmt frétt norskra miðla hafði norska fiskistofan varað við áformunum.
Í bréfi stofnunarinnar til hersins, dagsettu 21. maí, kemur fram að svæðið sé „mikilvægt fyrir veiðar með mismunandi veiðarfærum“ og að notkun þess til æfinga myndi þrengja að hagsmunum sjávarútvegsins. Fiskistofan mælti með að skoðaðar yrðu aðrar staðsetningar sunnar og á dýpra vatni til að draga úr áhrifunum.
Þrátt fyrir það var freigátunni sökkt þar sem hún lá fyrir akkeri á um 125 metra dýpi, og samkvæmt Fiskistofunni hafi dýpið verið talið nauðsynlegt skilyrði fyrir framkvæmdinni.
Tor Are Vaskinn, deildarstjóri hjá samtökum útvegsmanna Fiskebåt, gagnrýnir að ekkert samráð hafi verið haft við hagsmunasamtök í sjávarútvegi áður en ákvörðunin var tekin.
„Það er mikið og vaxandi álag á þessu svæði – bæði vegna heræfinga og eldflaugaskota frá Andøya. Við höfum tekið þátt í samstarfi með Andøya Space til að tryggja friðsamlega sambúð milli sjávarútvegs, geimstarfsemi og hersins. Ef herinn heldur svona áfram verðum við að endurmeta hvort það samstarfsform geti staðið,“ segir Vaskinn.
Hann tekur fram að útgerðin hafi skilning á þörf hersins fyrir þjálfun, en að staðsetningin hafi verið illa valin: „Í þessu tilfelli hefði herinn átt að átta sig á að svæðið er viðkvæmt. Fiskistofan hafði þegar bent á það. Við erum tilbúin að vinna með hernum að lausnum í framtíðinni – en þá þarf að hlusta á okkur áður en það er of seint,“ segir hann.
Ljósmynd: I, Peulle
