Nákvæmni og hreinlæti eru lykilatriði

Deila:

Nú þegar styttist í jól er jólasíldin hjá Síldarvinnslunni komin í framleiðslu – síld sem margir bíða spenntir eftir ár hvert. Frá þessu segir á vef Síldarvinnslunnar. Fyrirtækið hefur framleitt jólasíld í áratugi og er lögð rík áhersla á gæði og hefðbundin vinnubrögð. Notuð er nýveidd norsk-íslensk síld sem kemur vel kæld að landi, og starfsfólkið í fiskiðjuverinu í Neskaupstað leggur metnað sinn í að tryggja að úr verði hin eina sanna jólasíld – sem margir segja vera þá bestu í heimi.

Framleiðslan í ár hófst 24. september. Þá var síldin flökuð, skorin í hæfilega bita og lögð í saltpækil. Eftir ákveðinn tíma var hún færð í edikslög og loks sett í tunnur þar sem hún er látin standa þar til hún er tilbúin í fötur með sykurlegi, grænmeti og kryddjurtum – sem gefa síldinni sitt einkennandi jólabragð. Nákvæmni og hreinlæti eru lykilatriði í öllu ferlinu.

Umsjón með framleiðslunni hafa verkstjórarnir Oddur Einarsson og Eyðun Simonsen í samráði við Geir Sigurpál Hlöðversson rekstrarstjóra og Karl Rúnar Róbertsson gæðastjóra.

Síldarvinnslan framleiðir jólasíldina bæði fyrir eigið starfsfólk og samstarfsaðila en einnig fær líknarfélagið Hosurnar við Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað síld til sölu. Ágóðinn af þeirri sölu rennur til styrktar sjúkrahúsinu.

Panta má síld hjá Hosunum á netfanginu jolasild@gmail.com. Þá verður Hosumarkaður haldinn í Neskaupstað dagana 27. og 28. nóvember, þar sem hægt verður að kaupa jólasíld. Á höfuðborgarsvæðinu fer afhending fram miðvikudaginn 26. nóvember frá kl. 16–18 í vörumóttöku Hafrannsóknastofnunar að Fornubúðum 5 í Hafnarfirði, þar sem systurnar Erla Bjarný og Steina Gunnarsdætur sjá um afhendinguna.

Deila: