Seatrip dæmt til að greiða bætur

Deila:

Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt fyrirtækið Seatrips, eiganda farþegaskipsins Arctic Rose, til að greiða 49,8 milljónir króna í skaðabætur til Linda ShipInvest, eiganda gámaflutningaskipsins Veru D. Málið tengist atviki milli skipanna á Engeyjarsundi 10. september 2023, þegar Veru D tók niðri á grynningum við Akureyjarrif og hlaut verulegt tjón. Litlu mátti muna að þau rækust á.

Eigandi gámaskipsins og vátryggingafélag hans kröfðust alls 124 milljóna króna í bætur, en dómurinn taldi eiganda farþegaskipsins skaðabótaskyldan fyrir fimmtung tjónsins.

Í dómnum kemur fram að hvorki skipstjórar né stýrimenn skipanna hafi gætt þeirrar varúðar sem góð sjómennska krefst. Meðal annars hafi þeir ekki haft samband sín á milli í talstöð, þrátt fyrir að árekstrarhætta væri augljós. Skipstjóri Veru D var einnig gagnrýndur fyrir að hafa yfirgefið brúna þegar skipið var rétt að koma inn á hafnarsvæði án hafnsögumanns.

Dómurinn telur báða skipstjórnendur hafa brotið gegn fjölda reglna alþjóðlegra siglingalaga og með háttsemi sinni stefnt áhöfnum, farþegum og skipum í óþarfa hættu.

Deila: