Systurskipin lönduðu bæði í Grindavík

Deila:

Vestmannaeyjatogararnir Bergey VE og Vestmannaey VE lönduðu báðir í Grindavík að morgni föstudags 7. nóvember eftir stuttar veiðiferðir. Vinnslustöðvar Vísis þurftu á hráefni að halda og komu togararnir færandi hendi. Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við skipstjórana, þá Jón Valgeirsson á Bergey og Egil Guðna Guðnason á Vestmannaey, sem sögðu frá veiðunum.

Jón Valgeirsson sagði að Bergey hefði farið út á þriðjudag og brunað beint í Reynisdýpið. Þar tóku þeir tvö hol með ágætri ufsaveiði áður en flúið var á Péturseyna vegna veðurs. „Á Pétursey fékkst mest þorskur og dálítil ýsa með en afli var heldur tregur. Við komum með 45 tonn til löndunar og höldum til veiða á ný um hádegisbil,“ sagði Jón.

Egill Guðni sagði að Vestmannaey hefði verið um tvo sólarhringa á veiðum og komið með um 35 tonn til löndunar. „Við vorum að veiðum á Vík og Pétursey og einnig í Háfadýpinu. Þarna fékkst þorskur og ýsa. Vinnsluna vantaði fisk og því var túrinn ekki lengri. Haldið verður til veiða á ný eftir hádegið,“ sagði Egill Guðni Guðnason.

Deila: