Vinnslustöðin í Japan

Deila:

Vinnslustöðin segir á vef sínum frá þátttöku fyrirtækisins á alþjóðlegu sjávarútvegssýningunni í Qingdao í Japan íhaust, þar sem fyrirtækið kynnti íslenskar sjávarafurðir fyrir Asíumarkaði. Að sögn Yohei Kitayama, sölustjóra VSV Japan, er sýningin einn mikilvægasti vettvangur heims fyrir viðskipti með sjávarafurðir og skipti miklu máli til að fylgjast með þróun markaðsins.

Kitayama segir í fréttinni að eftirspurn eftir sjávarafurðum í Asíu fari vaxandi á sama tíma og framboð dragist saman. „Það er orðið mjög augljóst að framboð á nær öllum tegundum nær ekki að mæta eftirspurn,“ segir hann og bendir á að verð á helstu tegundum, eins og þorski og makríl, hafi hækkað verulega.

Hann segir stöðug gæði, áreiðanleiki og sanngjarnt verð gera íslenskar sjávarafurðir eftirsóttar í Asíu. Þá sé Vinnslustöðin orðin traustur samstarfsaðili á markaðnum með áherslu á langtímasambönd og fyrirsjáanleika í afhendingum.

Að sögn Kitayama hefur óstöðugleiki í loðnuveiðum haft áhrif á markaðinn og skapað þrýsting á verð og framboð. Hann segir að lykillinn að heilbrigðum markaði sé að tryggja stöðugt og sjálfbært framboð hráefnis og vinna sameiginlega að því að halda jafnvægi í verðmyndun.

Mynd/VSV: Hiroki (fyrstur frá vinstri) og Yohei Kitayama (annar frá hægri) ásamt starfsmönnum samstarfsaðila VSV.

Deila: