Samherji semur við HSÍ

Handknattleikssamband Íslands og Samherji hafa gert samstarfssamning sem felur í sér að Samherji verður einn af helstu samstarfsaðilum landsliða HSÍ á næstu árum. Samningurinn nær til karla-, kvenna- og yngri landsliða og felur í sér stuðning við áframhaldandi uppbyggingu afreksstarfs og þróun handboltans á landsvísu. Í kjölfar samstarfsins mun merki Samherja birtast á keppnisbúningum íslenskra landsliða og í tengslum við verkefni þeirra bæði heima og erlendis.
Jón Halldórsson, formaður HSÍ, segir að sterkir og áreiðanlegir samstarfsaðilar skipti miklu máli í þeirri uppbyggingu sem fram undan er. Hann lýsir mikilli ánægju með að fá Samherja til liðs við sambandið sem einn af lykilaðilum þess.
Baldvin Þorsteinsson, forstjóri Samherja, segir að það sé vel við hæfi að framleiðendur sjávarafurða styðji við bakið á öflugu íþróttafólki sem hámarki árangur sinn með hollu mataræði. Hann segir íslenskan handbolta og fiskinn bæði órjúfanlegan hluta af þjóðarsálinni og að Samherji sé afar stoltur af því að verða einn af helstu samstarfsaðilum HSÍ og styðja þannig við íslensku landsliðin í handbolta.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Handknattleikssambandi Íslands.
