Síldveiðin fór hægt af stað

Deila:

Síldarveiðar hjá skipum Síldarvinnslunnar eru hafnar að nýju eftir árshátíðarferð samstæðunnar til Póllands. Skipin Beitir NK og Börkur NK héldu til veiða vestur af landinu og var Beitir fyrstur á miðin. Að sögn Ólafs Gunnars Guðnasonar skipstjóra á Beiti gekk erfiðlega að finna síldina í upphafi. Hann segir að leitað hafi verið í Jökuldýpinu og Kolluálnum án árangurs, en þegar skipið var á leið í land fannst loks síld í Kolluálnum og þá hófst góð veiði. Aflinn í ferðinni varð 730 tonn sem landað var í Neskaupstað á laugardagskvöld og hófst vinnsla þegar í framhaldinu.

Þegar vinnslu úr Beiti lauk kom Börkur NK til hafnar með 1.670 tonn af síld. Hjörvar Hjálmarsson skipstjóri segir að þegar skipið kom á miðin hafi veiði verið lítil, en hún hafi glæðst þegar síld fannst í Kolluálnum. Hann segir að þar hafi verið um góða síld að ræða, 290–320 gramma að meðalþyngd, og að veiðin hafi batnað mjög eftir fyrstu holin.

Beitir hélt á ný til veiða strax eftir löndun en gera má ráð fyrir að það taki rúmlega tvo sólarhringa að vinna aflann úr Berki. Þriðja uppsjávarskip Síldarvinnslunnar, Barði NK, hélt til veiða á miðvikudagskvöld og var kominn með góðan afla í morgun.

Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar.

Deila: