Starfsemi Vélfags stöðvuð tímabundið

Starfsemi Vélfags ehf. á Akureyri hefur verið stöðvuð tímabundið eftir að utanríkisráðuneytið ákvað að hafna framlengingu á undanþágu fyrirtækisins frá þvingunaraðgerðum. Samkvæmt yfirlýsingu frá Vélfagi hefur ákvörðunin í reynd svipt félagið aðgengi að eigin fjármunum og gert því ómögulegt að sinna daglegum rekstri, þar á meðal greiðslum til starfsfólks og þjónustu við viðskiptavini. Allir starfsmenn hafa verið sendir heim á meðan beðið er dóms í máli fyrirtækisins gegn íslenska ríkinu.
Í yfirlýsingu Vélfags segir að fyrirtækið hafni alfarið ásökunum ráðuneytisins um að hafa ekki lagt fram nægileg gögn um eigendaskipti eða sýnt samstarfsvilja. Félagið segist hafa skilað „hundruðum útskýringa og gagna“, þar á meðal fullum kaupsamningum, staðfestum skráningum, lögfræðilegum álitsgerðum og fjárhagsgögnum sem sýni rekstrarlegt sjálfstæði frá öllum aðilum á þvingunarlista.
Vélfag segir einnig að enginn af raunverulegum eigendum félagsins né móðurfélaga þess sé á neinum slíkum lista. Aðeins Norebo JSC, móðurfélag Norebo Overseas sem seldi hlut sinn í Vélfagi í júlí 2023, hafi verið á listanum. Í bréfi Arion banka frá 2. september 2025, sem fyrirtækið birtir í yfirlýsingu sinni, kemur fram að frysting fjármuna hafi ekki verið ákvörðun bankans heldur framkvæmd að fyrirmælum utanríkisráðuneytisins, sem eitt hafi lagalega heimild til að aflétta henni.
Félagið gagnrýnir harðlega stjórnsýslu ráðuneytisins og segir hana brjóta gegn meðalhófsreglu stjórnsýsluréttarins og eignarréttarákvæðum stjórnarskrárinnar og Mannréttindasáttmála Evrópu. Þá segir Vélfag að ráðuneytið hafi hvorki framkvæmt sjálfstæða rannsókn né lagt fram ný gögn, heldur endurtekið „órökstuddar grunsemdir“ sem hafi verið hraktar.
Í yfirlýsingunni kemur fram að fyrirtækið hafi lagt áherslu á gagnsæi frá upphafi og birt helstu skjöl, samskipti og sönnunargögn opinberlega á vefnum www.velfagpapers.com.


