Brim semur við Kviku um viðskiptavakt

Deila:

Brim hf. hefur endurnýjað samning sinn við Kviku banka hf. um viðskiptavakt á hlutabréfum félagsins sem skráð eru á aðalmarkað NASDAQ Iceland. Samkvæmt samningnum mun Kvika banka leggja fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf Brims hvern viðskiptadag áður en markaðurinn opnar, og skulu tilboðin gilda innan dagsins. Ef tilboð er tekið eða fellt niður skal Kvika endurnýja það innan tíu mínútna þar til hámarksfjárhæð daglegra viðskipta er náð.

Tilboð skulu að lágmarki vera 200.000 hlutir, þar af 20.000 með verðbili að hámarki 1,5% og 180.000 með verðbili sem sé sem næst 1,5% en ekki minna en 1,45%. Heimilt er að auka hámarksverðbil í 3% ef verðbreyting innan dags fer yfir 5%. Ef viðskipti Kviku með hlutabréf félagsins nema 84 milljónum króna eða meira innan dags falla niður skyldur um hámarksmun kaup- og sölutilboða þann dag.

Samningurinn, sem er ótímabundinn, tekur gildi 11. nóvember 2025 og er uppsegjanlegur af báðum aðilum með 14 daga fyrirvara

Deila: