Gullver með 117 tonn

Ísfisktogarinn Gullver NS kom til heimahafnar á Seyðisfirði á sunnudagsmorgun að afloknum góðum túr. Aflinn var 117 tonn, þar af 68 tonn þorskur og 47 tonn ýsa. Að sögn Þórhalls Jónssonar skipstjóra var lögð áhersla á ýsuveiði, en erfitt reyndist að fá hreina ýsu. Hann segir að veiðarnar hafi hafist innarlega á Glettinganesflaki þar sem fengist hafi nokkuð af ýsu, en vegna veðurs hafi þurft að færa sig utar þar sem aflinn var meiri þorskur. Þá hafi verið haldið á Héraðsflóann og loks restað á Tangaflakinu í ágætis rjátli.
Þórhallur segir að aðstæður hafi verið krefjandi vegna leiðindakalda á grunnu vatni þar sem ýsan heldur sig gjarnan, auk þess sem hún gefi sig helst í birtu en stuttur dagur geri veiðarnar erfiðari. Landað var úr skipinu á mánudag og hélt það í kjölfarið aftur til veiða.

