Línuskipin veiddu vel

Línuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, hafa nýverið landað góðum afla á Djúpavogi eftir veiðar fyrir austan og suðaustan land. Páll landaði á sunnudag og Sighvatur í gær. Að sögn Benedikts Jónssonar skipstjóra á Páli gekk vel að veiða, þó langur hafi verið stímið á miðin. Hann segir að lagt hafi verið af stað frá Hafnarfirði austur á Mýragrunn þar sem aflinn hafi verið góður, um helmingur ýsa. Vegna veðurs og stórstreymis hafi skipið fært sig í Norðfjarðardýpið þar sem aflinn hafi verið mestur þorskur. Alls fór Páll Jónsson með 74 tonn á land, að mestu þorsk og ýsu, eftir fjórar lagnir.
Óli Björn Björgvinsson, skipstjóri á Sighvati GK, segir að skipið hafi hafið veiðar í Breiðamerkurdýpi þar sem aflinn hafi verið blandaður, en vegna veðurs og straums hafi verið siglt í Norðfjarðardýpið þar sem veiði hafi gengið betur og aflinn verið mestur þorskur. Sighvatur landaði 96 tonnum á Djúpavogi og skipstjórinn segir að aflabrögðin hafi verið ágæt, þrátt fyrir erfitt veður og mikinn straum á miðunum.
Bæði skip héldu til veiða á ný fljótlega eftir að löndun lauk. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar.

