Samkomulag við kínversk yfirvöld í höfn

Deila:

Samkomulag hefur verið undirritað á milli íslenskra og kínverskra yfirvalda um heilbrigðis- og sóttvarnakröfur vegna útflutnings á íslenskum sjávar- og lagareldisafurðum til Kína. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins.

Samnkomulagið hefur að sögn verið nokkur ár í vinnslu og mun hafa mjög jákvæð áhrif á útflutning sjávar- og lagareldisafurða til Kína. Undirritun fór fram í tengslum við heimsókn Höllu Tómasdóttur forseta Íslands til Kína í október sl. Þórir Ibsen, sendiherra Íslands í Kína, Þórir Ibsen undirritaði samkomulagið fyrir hönd Íslands.

Kínversk yfirvöld vinna nú að innleiðingu samkomulagsins sem er áætlað er að taki tvær til þrjár vikur. Matvælastofnun mun annast útgáfu vottorða af hálfu Íslands, stofnunin mun á næstu dögum upplýsa útflytjendur nánar um efni samningsins.

Deila: