Vitinn á Gjögurtá fallinn í sjó

Deila:

Vitinn á Gjögurtá við austanverðan Eyjafjörð er fallinn í sjó fram. Í byrjun júní létu sjófarendur Vaktstöð siglinga vita að vitinn hallaði óvenju mikið og í kjölfarið var ljóst að aðeins væri tímaspursmál hvenær hann myndi hrynja. Starfsmaður Vegagerðarinnar á siglingu með Grímseyjarferjunni á dögunum sá hvorki vitann né skipstjórinn, og töldu þeir líklegt að hann hefði þá þegar fallið. Vaktstöð siglinga staðfesti það síðar með yfirflugi TF-LÍF, þyrlu Landhelgisgæslu Íslands.

Vegagerðin hefur lengi fylgst með ástandi vitans þar sem sjórinn hefur grafið undan honum síðustu ár og jarðskjálftavirkni aukið líkur á skriðum í hlíðinni. Jarðfræðilegt mat hefur sýnt að hlíðin sem vitinn stóð í er afar óstöðug og því ekki talið forsvaranlegt að byggja vitann upp að nýju á sama stað að svo stöddu. Það verður endurmetið síðar.

Nú undirbýr Vegagerðin uppsetningu á fljótandi öryggismerki utan við ströndina við Gjögurtá. Merkið mun taka við hlutverki vitans og veita sjófarendum sömu siglingalegu upplýsingar, þannig að samfella helst á strandsiglingaleiðinni norðan frá Flatey á Skjálfanda og inn og út Eyjafjörð.

Fyrsti viti á Gjögurtá var reistur árið 1965 en eyðilagðist í gassprengingu fjórum árum síðar. Vitinn sem nú hefur fallið var reistur árið 1970. Hann stóð í 28 metra hæð á klettanös undir Gjögurfjalli og var með 3,2 metra hátt ljósahús úr trefjaplasti á steyptum, sívölum grunni.

Deila: