Nýtt björgunarskip á Ísafjörð

Nýtt björgunarskip Guðmundur í Tungu, kom til Ísafjarðar um helgina. Skipið sigldi inn á Pollinn um hádegi og lagðist að flotbryggju við gömlu Fagranesbryggjuna þar sem móttökuathöfn fór fram. Sr. Magnús Erlingsson blessaði skipið, Lúðrasveit Tónlistarskólans lék nokkur lög og haldin voru stutt ávörp í tilefni heimkomunnar.
Að athöfn lokinni var gestum boðið að koma um borð og skoða skipið. Eftir móttökunámskeiðið var boðið til kaffisamsætis í Guðmundarbúð á vegum Slysavarnardeildarinnar Iðunnar. Þar var opið hús þar sem gestir gátu kynnt sér aðstöðuna og skoðað björgunartæki.