Sameinar þrjár stofnanir í eina

Deila:

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hyggst leggja fram á vorþingi 2026 frumvarp sem felur í sér að Matvælastofnun, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs verði sameinaðar í eina stofnun. Í frumvarpinu er jafnframt gert ráð fyrir að borgar- og sveitarfélög láti af hendi verkefni heilbrigðiseftirlita sem tengjast matvælaeftirliti og þau færist til hinnar nýju stofnunar. Áformin byggja á áherslum stjórnarsáttmálans um einfaldara regluverk, hagræðingu og aukna skilvirkni í samskiptum atvinnulífsins og stjórnvalda.

Fýsileikagreining sem unnin var fyrir atvinnuvegaráðuneytið bendir til þess að þær stofnanir sem um ræðir sinni skyldum verkefnum á sviði matvælaeftirlits og hafi starfsemi víða á landinu. Það sé grundvöllur fyrir samþættingu og sameiginlegri stefnumótun á sviði matvælaframleiðslu og fiskveiða. Í greiningunni kemur fram að sameining geti bætt þjónustu, dregið úr skrifræði og stutt við atvinnulífið. Markmiðið er að ný stofnun verði öflug eftirlitseining með starfsstöðvum um allt land.

Í haust kynntu atvinnuvegaráðherra og umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra áform um einföldun regluverks þar sem gert er ráð fyrir að eftirlit með matvælaframleiðslu, hollustuháttum og mengunarvörnum færðist til ríkisstofnana. Matvælaþáttur þeirrar vinnu mun verða hluti af nýju frumvarpi atvinnuvegaráðherra og munu ráðuneytin áfram vinna saman að því að tryggja skilvirka tilfærslu verkefna frá sveitarfélögum.

„Einföldun stjórnsýslu og sameining stofnana er eitt af forgangsmarkmiðum ríkisstjórnarinnar og þessi framkvæmd er í samræmi við það,“ segir atvinnuvegaráðherra. Hún segir áhersluna liggja á skilvirkri og gagnsærri þjónustu, stafrænum umbótum og öflugum vinnustöðum um landið sem stuðli að vaxtarmöguleikum atvinnulífsins. „Hin nýja stofnun verður eftirsóknarverður vinnustaður fyrir okkar færustu sérfræðinga á þessu sviði sem bjóðast jafnframt tækifæri til starfsþróunar um allt land.“

Starfsmönnum viðkomandi stofnana hefur þegar verið kynnt fyrirhuguð breyting. Gert er ráð fyrir að sameinuð stofnun taki til starfa í janúar 2027.

Deila: