Frystigeymslurnar rúma 20 þúsund tonn

Frystigeymslurnar í Neskaupstað hafa frá árinu 2000 verið stór hluti af starfsemi Síldarvinnslunnar og gegna lykilhlutverki við geymslu frystra uppsjávarafurða. Fyrsta geymslan var byggð árið 2000 og sú næsta árið 2005, og rúma þær samanlagt um 20.000 tonn. Frá þessu segir á vef Síldarvinnslunnar.
Á síðari árum hefur magn í geymslunum ráðist að mestu af loðnuveiðum, sem sveiflast mikið milli ára. Stefán Einar Elmarsson vöruhússtjóri segir að á þessu ári hafi um 33.000 tonn af makríl, síld, dálitlum kolmunna og bolfiski borist í geymslurnar, en aðeins um 2.000 tonn af loðnu. Um 12.000 tonn eru nú í geymslu og hafa 20.000 tonn farið frá þeim það sem af er ári. Að meðaltali eru sendir 134 gámar á mánuði frá Neskaupstað og flutningaskip koma reglulega til hafnar, þó færri en áður. Stefán segir að Norðfjarðargöngin hafi skipt sköpum fyrir flutningana og að markaðir hafi breyst á undanförnum árum, m.a. eftir að Rússlandsmarkaður lokaðist, en nú fari afurðir meðal annars til Georgíu, Króatíu, Egyptalands og Japans.

