Landað víða um land

Deila:

Vestmannaeyjatogararnir Vestmannaey VE og Bergey VE lönduðu á Djúpavogi á sunnudag þar sem vantaði hráefni í vinnslustöð Vísis í Grindavík. Vestmannaey kom með um 60 tonn og Bergey með 44 tonn, að mestu ufsa, sem fékkst á Breiðamerkurdjúpi, í Lónsbugt og í Sláturhúsinu. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar.

Að undanförnu hafa bæði skipin landað á óvenju mörgum stöðum vegna veiða víða um land. Arnar Richardsson, rekstrarstjóri Bergs – Hugins, segir að slíkt hafi ekki gerst áður á jafn skömmum tíma og að næsta löndun verði á fimmtudag í Neskaupstað. Hann segir aflann síðustu tvo mánuði vera um 250 tonnum minni en í fyrra, þar af hafi þorskafli dregist saman um rúm 400 tonn, en meira veiddist af karfa og ufsa. Veðurfar hafi einnig haft áhrif á aflabrögðin.

Deila: