Rannsóknir í straumvötnum og stöðuvötnum

Undanfarna mánuði hefur starfsfólk Hafrannsóknastofnunar verið á ferð um Norður- og Norðausturland í rannsóknarleiðöngrum í tengslum við Icewater-verkefnið. Á árinu hefur verið farið í fjögur straumvötn og fjögur stöðuvötn þar sem ýmiss konar sýnataka og mælingar hafa farið fram. Til rannsóknar eru meðal annars Svartá, Selá, Eyjafjarðará, Finnastaðaá, Vatnshlíðarvatn, Svartárvatn, Másvatn og Ytra Deildarvatn.
Sýnataka hefur farið fram að vori, sumri og hausti fyrir eðlis- og efnafræðilega þætti og í janúar verður farið í vetrarsýnatöku. Á sama tíma hefur blaðgræna verið mæld og háfað fyrir púpuhömum rykmýs, og í ágúst hefur sýnum þessu til viðbótar verið safnað til greininga á hryggleysingjum á botni vatna. Í júlí var farin sérstaka ferð í samstarfi við Náttúrufræðistofnun þar sem gróðurfar á botni stöðuvatnanna var skrásett.
Í ágúst var farið í þrjú vötn, Vatnshlíðarvatn, Másvatn og Svartárvatn, en þau eru af ólíkri vatnagerð. Í hvert vatn var lögð ein netasería yfir nótt, og í henni eru ellefu net með möskvastærðum frá 13 mm upp í 60 mm sem gefa gott úrtak um lengd og aldur fiska í hverju vatni.
Verkefnið LIFE Icewater fékk 3,5 milljarða króna styrk frá Evrópusambandinu til að flýta fyrir og bæta innleiðingu vatnaáætlunar á Íslandi. Verkefninu er ætlað að efla þekkingu á notkun, eiginleikum og ástandi vatns, tryggja samhæfða og fumlausa stjórnsýslu í vatnamálum og bæta vatnsgæði, meðal annars með úrbótum á fráveitu og hreinsun fráveituvatns. Þá er einnig lögð áhersla á að fræða almenning og hagaðila um mikilvægi vatns.
Verkefnið er unnið ásamt 21 íslenskum samstarfsaðilum úr röðum sveitarfélaga og stofnana. Heildarumfang verkefnanna er 5,8 milljarðar króna og LIFE-áætlun Evrópusambandsins styrkir þau um 60%. Verkhlutum er skipt í sjö og verða þeir unnir á árunum 2025 til 2030.
Myndin er af vef Hafró.


