Efla eldið með nýjum kvíum og lúsavörnum

Deila:

Arctic Fish hefur ráðist í stórar fjárfestingar í búnaði til laxeldis á Vestfjörðum og segir félagið að nýir fiskeldispokar og lúsapils muni styrkja bæði rekstur og forvarnir gegn lúsasmiti. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Félagið hefur keypt 34 fiskeldispoka úr HDPE-efni frá Mørenot sem eru stífari og sterkari en eldri gerðir. Net úr slíku efni eru nuddþolin með sléttu yfirborði sem auðveldar þvott neðansjávar. Pokarnir eru jafnframt án ásætuvarna sem gerir þá umhverfisvænni og einfaldari í þrifum, auk þess sem þeir eru hannaðir með auknum styrkingum til að þola meira álag og draga úr líkum á skemmdum.

Pokarnir voru handunnir hjá Kohinoor, dótturfyrirtæki Hampiðjunnar á Indlandi, þar sem ekki er hægt að nota saumavélar vegna stífleika netsins. Allir pokarnir hafa verið afhentir og eru komnir í notkun í sjó.

Til að efla varnir gegn laxalús hefur Arctic Fish einnig keypt lúsapils fyrir allt að 40 poka frá Fiizk Protection. Lúsapils eru sett efst utan um pokana og mynda hindrun sem dregur úr aðgangi laxalúsar og annarra sníkjudýra að eldisfiskinum. Félagið hefur áður notað slík pils með góðum árangri og telur þau mikilvæg í áframhaldandi forvörnum.

Arctic Fish nýtir þjónustustöð Hampiðjunnar á Ísafirði fyrir viðhald og þrif á búnaðinum. Þar starfa um 20 manns og stöðin er búin sérhæfðum búnaði, meðal annars vatnshreinsistöð, 60 rúmmetra þvottavél fyrir fiskeldispoka og netaverkstæði til viðgerða.

Kaupin á pokunum og lúsapilsunum eru hluti af 1,3 milljarða króna fjárfestingu Arctic Fish í nýjum búnaði sem felur einnig í sér ný fóðurkerfi og aðra tækni sem á að auka sjálfbærni, bæta velferð fisksins, draga úr umhverfisáhrifum og styrkja öryggi starfsfólks.

Starfsemi Arctic Fish í Tálknafirði.

Deila: