Spærlingur fylgir síldinni

Beitir NK kom til Neskaupstaðar á laugardag með 1.540 tonn af íslenskri sumargotssíld sem fékkst vestur af landinu og daginn eftir kom Börkur NK að landi með 1.480 tonn. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar. Þar er rætt við skipstjórana.
Ólafur Gunnar Guðnason skipstjóri á Beiti sagði að túrinn hefði gengið vel. „Við byrjuðum í Kolluálnum og tókum þar tvö 100 tonna hol. Síðan færðum við okkur í Jökuldýpið og þar voru tekin fjögur hol sem gáfu frá 100 og upp í 400 tonn. Það var ágæt veiði í Jökuldýpinu en síldin sem fékkst í Kolluálnum var heldur stærri. Það var blíða allan túrinn.“
Hjörvar Hjálmarsson skipstjóri á Berki sagðist einnig ánægður. „Við fengum aflann í átta holum. Afli í hverju holi var mjög misjafn eða frá engu og upp í 400 tonn. Við hófum veiðarnar í Faxadýpinu en síðan var haldið í Kolluál og þar fékkst helmingur aflans. Það var góð veiði undir lokin í túrnum og síldin sem fékkst var ágæt. Það tekur um tvo sólarhringa að vinna aflann en hann er unninn jafnóðum og landað er.“
Báðir skipstjórarnir nefndu að spærlingur fylgdi síldinni vestur af landinu og þá sérstaklega í Jökuldýpinu og Faxadýpi en ekki í Kolluál. Barði NK er nú á miðunum fyrir vestan og er áætlað að hann komi til löndunar á mánudag en fram undan er helgarfrí hjá starfsfólki fiskiðjuvers Síldarvinnslunnar.