Erfiðar veiðar á Austfjarðamiðum

Deila:

Togarar Síldarvinnslusamstæðunnar hafa undanfarið verið að veiðum á Austfjarðamiðum og hafa aflabrögð verið misjöfn. Jóhanna Gísladóttir GK landaði fullfermi í Grindavík í gær og Gullver NS landaði 90 tonnum á Seyðisfirði. Í dag eru Vestmannaey og Bergey að landa í Neskaupstað.

Einar Ólafur Ágústsson, skipstjóri á Jóhönnu Gísladóttur, sagði að veiðiferðin hefði verið bæði löng og erfið. Hann sagði að fiskurinn hefði verið víða en dreifður og að það hentaði togveiðum illa á sama tíma og línuskip væru að fá góðar veiðar. Hann sagði að farið hefði verið mjög víða, meðal annars í Lónsbugt, Berufjarðarál, á Mjölskipið, Grunnfótinn, Örvæntinguna, Hvalbakshallið og Öræfagrunn, og loks hefði verið stoppað í Reynisdýpinu þar sem fengist hefði dálítill ufsi. Í aflanum hefði mest verið ufsi auk ýsu og þorsks. Hann sagði að túrinn hefði tekið fimm sólarhringa sem væri of langur tími miðað við aflann og að haldið yrði til veiða á ný strax eftir löndun.

Hjálmar Ólafur Bjarnason, skipstjóri á Gullveri, var ekki ánægður með túrinn. Hann sagði að reynt hefði verið á allar bleyður frá Stokksnesi norður á Gletting en að veiðarnar hefðu gengið stirðlega. Aflinn hefði verið aðallega þorskur auk ufsa, ýsu og karfa. Hann sagði að veðrið hefði verið sæmilegt framan af en endað í brælu og að farið yrði aftur til veiða fljótlega eftir löndun.

Skipstjórarnir Jón Valgeirsson á Bergey og Birgir Þór Sverrisson á Vestmannaey sögðu að skipin hefðu fylgst að á veiðunum. Þau byrjuðu á Glettinganesflaki, héldu síðan á Gula teppið og enduðu Utanfótar. Bæði skip voru með tæp 60 tonn og aflinn mest ýsa og þorskur. Þeir sögðu að bræludrulla hefði einkennt megnið af túrnum og aflabrögðin verið óttalegt sarg. Skipin halda bæði aftur til veiða í kvöld.

Deila: