Vilja reisa landeldi á Bakka

Sveitarfélagið Norðurþing og Bakkavík landeldi ehf. hafa undirritað viljayfirlýsingu um lóð undir mögulega landeldisstöð fyrir lax á iðnaðarsvæðinu á Bakka norðan Húsavíkur.
Í yfirlýsingunni sveitarfélagsins kemur fram að Bakkavík landeldi telji mikil tækifæri felast í sjálfbærri auðlindanýtingu og atvinnusköpun í Norðurþingi með uppbyggingu slíkrar stöðvar, sem geti styrkt atvinnulíf og búsetu í sveitarfélaginu og nágrannabyggðum. Fyrirtækið hyggst nú hefja ítarlega greiningu á fýsileika rekstursins, meðal annars varðandi aðgengi að jarðhita, ferskvatni, raforku, jarðsjó, hafnaraðstöðu, starfsleyfisskilyrðum og öðrum þáttum sem skipta máli fyrir landeldi.
Norðurþing telur verkefnið falla vel að nýrri umhverfis- og loftslagsstefnu sveitarfélagsins, markmiðum um hringrásarhagkerfi og þeirri hugmyndafræði sem hefur verið mótuð um Grænan iðngarð á Bakka, þar sem leitast verður við að hámarka samlegðaráhrif og bætta nýtingu auðlindastrauma.
Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri sagði við undirritun að sveitarstjórn sjái fyrir sér landeldi á Bakka í framtíðinni og að vonast sé til að rannsóknir Bakkavíkur landeldis leiði í ljós hagkvæmni slíks reksturs. Víkingur Gunnarsson framkvæmdastjóri fyrirtækisins sagði verkefnið þróunarverkefni sem taki nokkur ár og að niðurstaða fýsileikagreiningar muni ráða því hvort gengið verði til samninga um notkun lóðarinnar.
