Hvalir geta haft staðbundin áhrif á frumframleiðni

Deila:

Ný vísindagrein sem birtist í Proceedings of the National Academy of Sciences (PNAS) fjallar um áhrif hvalaúrgangs skíðishvala á frumframleiðni í Norður-Atlantshafi. Greinin ber heitið Impact of baleen whales on ocean primary production across space and time og voru niðurstöður hennar unnar af alþjóðlegum hópi vísindamanna undir forystu Carla Freitas hjá norsku hafrannsóknastofnuninni IMR. Guðjón Már Sigurðsson hjá Hafrannsóknastofnun var meðal höfunda og notað var efni úr reglubundinni vöktun á veiddum langreyðum í Hvalfirði.

Í rannsókninni voru mæld næringarefni eins og köfnunarefni og snefilefni á borð við járn, sink og kopar úr þvagi og saur hrefna og langreyða. Sýni úr langreyðum komu frá Íslandi og sýni úr hrefnum frá Noregi. Niðurstöðum úr þessum mælingum var síðan varpað yfir á aðrar tegundir skíðishvala í Norður-Atlantshafi með hliðsjón af þekktri fæðuvistfræði og lífeðlisfræði tegundanna.

Að því loknu voru upplýsingar um fjölda, viðveru og útbreiðslu hvalanna settar inn í vistfræðilíkan sem nær yfir Barentshaf, Noregshaf, Grænlandshaf og Íslandshaf. Líkanið inniheldur hafstrauma og mælingar á næringarefnum á þessum svæðum. Það var síðan notað til að herma áhrifin á frumframleiðni með og án hvalaúrgangs.

Niðurstöðurnar sýndu að áhrif hvala á frumframleiðni voru breytileg eftir tíma og staðsetningu. Almennt voru áhrifin lítil, „2% eða minna yfir árið“. Hins vegar komu fram svæði yfir sumartímann þar sem áhrifin voru mun meiri, allt að „10% yfir þessi tímabil“, einkum þar sem sjór var lagskiptur eða langt var frá landi og þar með næringarefnum sem berast frá landi. Heildaráhrif á slíkum svæðum yfir árið reyndust þó minni, eða „4%“.

Mesta áhrifin mældust á svæðinu milli Íslands og Noregs, djúpt austur af landinu. Að því sögðu benda niðurstöður rannsóknarinnar til þess að hvalir hafi „almennt séð frekar takmörkuð áhrif á frumframleiðni í höfunum í kringum Ísland“, en geti samt haft töluverð staðbundin áhrif á ákveðnum svæðum yfir sumarið.

Deila: