1.240 tonn af sumargotssíld

Barði NK kom til hafnar í Neskaupstað í gær með 1.240 tonn af íslenskri sumargotssíld sem fékkst vestur af landinu. Síldarvinnslan greinir frá á vef sínum. Þar segir Þorkell Pétursson skipstjóri að veiðiferðin hafi í reynd gengið eins og í sögu. „Við tókum því rólega í túrnum enda lá fyrir að gott helgarfrí yrði í fiskiðjuverinu í Neskaupstað. Aflinn fékkst í fimm holum og var togað í hverju holi frá einum og upp í sjö tíma.“
Aflinn í holunum var frá 150 og upp í 360 tonn. Barði var við veiðar í Kolluálnum, „nánar tiltekið á Wilson sem er á landgrunnskantinum“, og þaðan var dregið norður á Látragrunnskantinn. Þorkell sagði að veður hefði verið gott „ef undan er skilinn einn dagur en þá var kaldaskítur“.
Löndun hófst klukkan sjö í gærkvöldi og er gert ráð fyrir að hún taki um tvo sólarhringa. Síldin er fín og á bilinu 280–300 grömm. „Það eru semsagt allir glaðir hér um borð. Nú eru bæði Börkur og Beitir á miðunum og við bíðum rólegir þangað til ljóst verður um framhaldið,“ sagði Þorkell Pétursson.
