Rannsaka tjón á sjókví í Reyðarfirði

Deila:

Matvælastofnun segir í tilkynningu að henni hafi borist upplýsingar frá Kaldvík þriðjudaginn 18. nóvember um þrjú göt á nótarpoka einnar kvíar á eldissvæðinu Hafranesi í Reyðarfirði. Götin fundust við reglubundið neðansjávareftirlit og voru viðgerðir framkvæmdar samdægurs. Um var að ræða göt á 16 metra dýpi, öll hlið við hlið, langsum eftir pokanum. Fyrsta gatið mældist 16 x 5 sentímetrar, annað 14 x 4 sentímetrar og það þriðja 12 x 4 sentímetrar.

Í kvínni voru 193.164 fiskar með meðalþyngd upp á 214 grömm. Síðasta neðansjávareftirlit hafði farið fram 29. október og kom þar ekkert tjón í ljós. Fyrirtækið taldi ekki líkur á strokfiski og virkjaði ekki viðbragðsáætlun, en Matvælastofnun segir hins vegar að ekki sé hægt að útiloka að fiskur hafi strokið og hefur hafið rannsókn á málinu.

Deila: