Mótmæla harðlega vegna Mjóafjarðar

Deila:

Landssamband veiðifélaga mótmælir harðlega ákvörðun atvinnuvegaráðherra um að láta vinna burðarþolsmat fyrir Mjóafjörð með það að markmiði að ryðja brautina fyrir sjókvíaeldi í firðinum. Samkvæmt umfjöllun fjölmiðla eigi ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar að liggja fyrir snemma á vormánuðum og í kjölfarið verði ekkert því til fyrirstöðu að bjóða út eldissvæði. Samtökin segja að með þessari ákvörðun sé ráðherra að leyfa iðnaðinum að taka enn einn fjörðinn undir það sem þau nefna mengandi starfsemi.

Í umsögn LV er vísað til nýlegs atviks í Reyðarfirði þar sem Matvælastofnun greindi frá því að þrjú göt hefðu fundist á netapoka í sjókví og að ekki væri hægt að útiloka að fiskur hefði strokið. Þar segir að mörgum sé eflaust í fersku minni þegar eldislaxar slepptust af Vestfjörðum í sumar og byrjuðu að leita upp í ár víða um land. Samtökin segja að opnar sjókvíar séu hannaðar þannig að slys, slit og mistök verði hluti af rekstrarmódelinu og að kostnaðurinn falli á náttúruna en ekki reksturinn.

Landssamband veiðifélaga bendir á að austfirskir laxastofnar séu víða smáir og viðkvæmir og að rannsóknir hafi sýnt að sjókvíaeldi á Austfjörðum hafi valdið talsverðri erfðablöndun í villtum laxastofnum þar. Þá er tekið fram að töluverð erfðablöndun hafi þegar átt sér stað vegna stroks eldislaxa sem aldrei voru tilkynnt til opinberra aðila. Samtökin segja að smáir laxastofnar séu mun viðkvæmari fyrir erfðablöndun en stærri stofnar og því sé fráleitt að auka umfang sjókvíaeldis við þessar aðstæður. Þá er bent á að sjóbleikjan eigi undir högg að sækja á Austfjörðum og annars staðar og að opið laxeldi í sjókvíum auki álagið, auki áhættuna og rýri líkur á að sjóbleikjustofnar nái viðspyrnu.

LV setur fram þrjár kröfur í yfirlýsingunni. Í fyrsta lagi að sjókvíaeldi á frjóum laxi í opnum kvíum verði stöðvað og lagt niður sem allra fyrst. Í öðru lagi að engir nýir firðir, þar á meðal Mjóifjörður, verði teknir undir opið sjókvíaeldi. Í þriðja lagi að ef fiskeldi í sjó eigi að eiga sér framtíð hér á landi þá liggi hún í lokuðum kvíum með ófrjóum laxi þannig að áhætta á stroki, erfðablöndun og langvarandi áhrifum á vistkerfi verði raunverulega lágmörkuð. Í lok yfirlýsingarinnar segir að sjóbleikjan og villtir laxastofnar þoli ekki frekari tilraunastarfsemi og að burðarþolsmat á næsta firði sé ekki lausn heldur útvíkkun á vandanum.

Deila: