Blængur með tæp 500 tonn

Deila:

Frystitogarinn Blængur NK kom til Neskaupstaðar fyrir helgi að loknum tuttugu og tveggja daga túr. Afli skipsins var 470 tonn upp úr sjó og eru verðmæti aflans 364 milljónir króna. Frá þessu segir á vef Síldarvinnslunnar.

Bjarni Ólafur Hjálmarsson skipstjóri segir á vefnum að túrinn hafi gengið vel. Veður hafi almennt verið gott og alvarlegar brælur í túrnum.

Skipið hélt sig að sögn á Austfjarðamiðum og á miðunum út af suðausturlandinu og fékkst mest af ýsu, en einnig þorskur, ufsi og grálúða. Að hans sögn var engin mokveiði en ágætis nudd allan túrinn. Hann sagði fiskverðið skipta mestu máli og að verðið hefði hækkað mikið að undanförnu, þannig að þeir fyndu fyrir verðhækkunum í hverjum túr.

Blængur hélt þegar til veiða að lokinni löndun.

Deila: