Róbóti þrífur hjá Samherja

Deila:

Róbóti sem sér um þrif á vélbúnaði í vinnslu Samherja á Dalvík hefur nú verið tekinn í notkun eftir um tveggja ára þróun í samvinnu við kanadíska fyrirtækið Rbot9, að því er fram kemur á vef Samherja. Rbot9 er verkfræðifyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun og samþættingu kapaltengdra róbóta og hlaut nýsköpunarverðlaun á EATS Expo 2025, einni stærstu tæknisýningu Norður-Ameríku. Hinn nýi búnaður hefur vakið mikla athygli.

Atli Dagsson, tæknistjóri landvinnslu Samherja, segir að áfram verði unnið að þróun búnaðarins með tækniteymi Rbot9. Í hönnun nýja vinnsluhússins á Dalvík hafi verið tekið mið af því að rými og lofthæð væru næg, þar sem búast mætti við frekari notkun slíkra lausna í framtíðinni. Hann segir að samstarfið við Rbot9 hafi byrjað eftir heimsókn á tækni- og matvælasýningu í Bandaríkjunum, þar sem fyrirtækið kynnti róbóta sem greina skemmdir á flugvélaskrokkum. Í dag hefur róbóti sem sinnir þrifum á lausfrystiflokkara verið settur upp og vinna heldur áfram við fleiri sambærileg kerfi.

Gestur Geirsson framkvæmdastjóri landvinnslu Samherja segir að hreinlæti sé einn mikilvægasti þáttur í matvælavinnslu og að róbótinn hefjist handa fljótlega eftir að hefðbundinni vinnslu lýkur. Með tilkomu nýrrar tækni breytist vinnan að hluta yfir í eftirlit með því að búnaðurinn vinni vel og örugglega. Hann segir að samstarfið við Rbot9 sé í takt við þá stefnu Samherja að taka þátt í þróun og innleiðingu nýrra lausna og að nýi búnaðurinn hafi þegar hlotið alþjóðlega athygli.

Að sögn Fédéric Vachon hafa matvælafyrirtæki víða um heim sýnt mikinn áhuga á VOTTA búnaðinum og þegar óskað eftir því að fá að sjá hann á Dalvík. Hann segir að nýsköpunarverðlaunin á EATS Expo 2025 hafi vakið athygli og að nú standi yfir skipulagning ferða til Dalvíkur með það að markmiði að setja búnaðinn upp í fleiri verksmiðjum í Ameríku og Evrópu.

Deila: