Síldarvertíð að ljúka

Nú styttist í að veiðum á íslenskri sumargotssíld vestur af landinu ljúki. Börkur NK kom til Neskaupstaðar á miðvikudag með 1.650 tonn og Beitir NK kom á laugardag með sama magn. Barði NK er nú í sinni síðustu veiðiferð á vertíðinni en veður hefur truflað veiðar hans talsvert.
Hjörvar Hjálmarsson, skipstjóri á Berki, sagði að túrinn hefði gengið þokkalega. Hann sagði að aflinn hefði fengist í sjö holum og að yfirleitt hefðu 200–300 tonn komið í hverju holi. Veiðarnar hófust á Látragrunni en síðan var haldið suður á Wilson og í Kolluálinn. Að hans sögn var varla hægt að segja að mikill kraftur hefði verið í veiðunum en þetta hefði þó alls ekki verið slæmt.
Tómas Kárason, skipstjóri á Beiti, lýsti svipaðri reynslu. Þar fékkst aflinn utan við Kolluálinn í sex holum sem voru mjög misjöfn, frá 80 tonnum og upp í 500. Hann sagði síldina sem fékkst vera fína, 280–290 gramma, og að vertíðinni væri nú lokið hjá þeim.
Börkur og Beitir halda nú til kolmunnaveiða.

