42 krónur fyrir kíló af laxi

Fiskistofa hefur reiknað út gjald vegna fiskeldis í sjó fyrir árið 2026. Þetta kemur fram á vef Fiskistofu.
Fiskistofa leggur gjaldið á tvisvar sinnum á ári, 15. ágúst vegna tímabilsins 1. janúar til 30. júní og 15. febrúar vegna tímabilsiins 1. júlí til 31. desember.
Gjaldtakan er byggð á 2. grein laga um töku gjalds vegna fiskeldis í sjó og fiskeldissjóð, ásamt síðari breytingum með lögum um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2023 og lögum um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2024.
Gjald 2026:
-
41,66 kr á hvert kíló slátraðs lax
-
20,83 kr á hvert kíló slátraðs regnbogasilungs
