Endurfundir 54 árum eftir slysið

Þegar Síldarvinnslan keypti skuttogarann Barða árið 1970 var um að ræða tímamót í sögu útgerðarinnar. Skipið kom til Neskaupstaðar 14. desember og hélt til veiða í febrúar 1971, en þrátt fyrir efasemdir margra um togaraútgerðina sannaði Barði sig strax með góðum aflabrögðum.
Meðal ungmenna í áhöfninni var 19 ára Akureyringur, Þorsteinn Vilhelmsson, sem síðar varð einn eigenda Samherja. Hann rifjar upp að hafa fengið pláss með aðstoð föður síns og að mætt hefði verið honum vel fyrir austan. „Það mokfiskaðist á Barða,“ segir hann á vef Síldarvinnslunnar og bætir við að tekjurnar hefðu bjargað honum í stýrimannanáminu.
Í sama túr varð alvarlegt slys þegar 17 ára skipverji, Ómar Sævar Hreinsson, fékk toghlera á bringuna og kastaðist í skutrennuna. „Ég náði taki á Sævari rétt í þann mund sem hann var að fara í sjóinn,“ segir Þorsteinn. Sævar hlaut lífshættulega áverka en var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur.
Félagarnir hittust á ný 27. nóvember síðastliðinn, rúmum 54 árum síðar. Sævar, sem í dag er píulagningameistari í Neskaupstað, man ekkert eftir slysinu en sagði: „Þarna bjargaði Þorsteinn lífi mínu og ég stend í ævarandi þakkarskuld við hann. Ég hef lent í ýmsu um ævina en líklega var ég næst því að drepast þegar þetta átti sér stað.“
Nánar má lesa um endurfundinn á vef Síldarvinnslunnar.
Meðfylgjandi ljósmynd tók Smári Geirsson. Hún birtist á vef Síldarvinnslunnar.
