SFS segir gögn um sameiningaráform vanta

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi telja áform atvinnuvegaráðuneytisins um sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs illa ígrunduð þar sem engin fýsileikagreining liggi fyrir. Í umsögn samtakanna kemur fram að vísað sé til slíkra gagna, en að greininguna sé hvergi að finna. Samtökin segja nauðsynlegt að slík greining sýni kostnað, mögulegan sparnað, áhrif á tekjur og útgjöld ríkissjóðs, þjónustu við atvinnulíf og almenning og dreifingu starfa og þekkingar. Að þeirra mati þurfi þetta að liggja fyrir áður en hægt sé að taka upplýsta afstöðu.
Sérstaklega vara samtökin við því að Verðlagsstofa skiptaverðs verði hluti af sameinaðri stofnun. SFS segir að hlutverk stofunnar sé sérhæft, byggi á kjarasamningum sjómanna og krefjist faglegs sjálfstæðis sem verði ekki tryggt innan stærri eftirlitsstofnunar.
Í umsögninni er einnig bent á að hlutverk og starfsemi Matvælastofnunar og Fiskistofu sé mjög ólík þótt snertifletir séu til staðar, til dæmis í málum tengdum fiskeldi. SFS segja augljóst að sameining geti valdið tilfærslu starfa milli landshluta og að hætta sé á að þekking tapist ef starfsfólk treystir sér ekki til að flytja. Vísað er til reynslunnar af flutningi Fiskistofu norður á Akureyri um miðjan síðasta áratug og bent á að Ríkisendurskoðun hafi fjallað um þann flutning sem víti til varnaðar.
Samtökin telja einnig að vel þurfi að meta áhrif tillagna á eftirlit á sjó, þar sem Fiskistofa hafi í reynd meiri samlegð með Landhelgisgæslunni en Matvælastofnun. Þau segja að sérþekking Fiskistofu á fiskveiðistjórnun sé lykilforsenda skilvirks eftirlits og að engin sambærileg þekking sé innan Matvælastofnunar.
Í umsögninni er fjallað sérstaklega um fiskeldismál og minnt á að stjórnsýsla málaflokksins hafi lengi verið flókin og tímafrek. Samtökin segja að þótt breytingar geti verið skynsamlegar til lengri tíma verði þær að byggjast á skýrum markmiðum og ítarlegu mati á áhrifum.
SFS vara þó heildstætt við því að fyrirhuguð sameining geti skapað „stóra, svifaseina og miðstýrða stofnun“ sem verði óskilvirkari en núverandi einingar. Þau segja að þörf sé á skýrari gögnum áður en hægt sé að staðfesta að markmiðin um hagræðingu, skýrari ábyrgð og styttri málsmeðferð náist.
Að lokum leggja samtökin áherslu á að Verðlagsstofa skiptaverðs verði áfram sjálfstæð eining utan sameinaðrar stofnunar, enda byggi hlutverk hennar á trausti og óháðu faglegu mati.

