Samið við Kínverja um villtar afurðir úr sjó

Deila:

Nýr samningur um sölu villtra afurða úr sjó til Kína hefur tekið gildi.. Samkvæmt því sem fram kemur í frétt á vef Matvælastofnunar hefur samningurinn verið í vinnslu í nokkur ár og eru vonir bundnar við að hann hafi jákvæð áhrif á útflutning sjávarafurða til Kína. Undirritunin fór fram í tengslum við heimsókn Höllu Tómasdóttur forseta Íslands til Kína í október og segir að Þórir Ibsen sendiherra Íslands í Kína hafi skrifað undir fyrir hönd Íslands.

Í samningnum er vísað til villtra afurða sem veiddar, uppskornar eða þeim safnað á íslensku hafsvæði og eru þær úr jurta- og dýraríkinu að því gefnu að þær teljist hæfar til manneldis. Útilokaðar eru afurðir úr spendýrum og allar tegundir sem falla undir alþjóðasamninginn „Convention on the International Trade in Endangered Species of Wild Fauna and Flora“ eða eru á lista „National Key Protected Wild Animals“ í Kína. Þá eru lifandi dýr og kímefni einnig undanskilin.

Helstu breytingar felast í því að útflutningur sjávarafurða verður ekki lengur bundinn við takmarkaðan afurðalista, þó að listinn sé áfram til staðar, en honum hefur nú verið bætt við „Wild aquatic products“. Kínversk yfirvöld hafa þegar innleitt samninginn og er hann orðinn virkur. Matvælastofnun mun áfram annast útgáfu vottorða af hálfu Íslands.

Deila: