Stýrir útgerðarsviði Samherja

Deila:

Þorvaldur Þóroddsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja. Frá þessu segir á vef fyrirtækisins. Þar segir að Þorvaldur sé menntaður sjávarútvegsfræðingur frá Háskólanum á Akureyri og hafi undanfarin ár séð um hráefnisstýringu hjá landvinnslum Samherja. Þar áður hafi hann verið gæða- og þróunarstjóri félagsins. Þorvaldur hefur starfað hjá Samherja frá árinu 2005.

Kristján Vilhelmsson einn stofnenda Samherja lét af starfi framkvæmdastjóra útgerðarsviðs nú um mánaðamótin eftir 43 ára starf, að því er fram kemur í fréttinni.

Vel búin skip og traustar áhafnir til sjós og lands

„ Ég er þakklátur yfirstjórn félagsins fyrir traustið. Skip Samherja eru afar vel búin og vel mönnuð. Í landi starfar sömuleiðis traustur hópur sem hefur víðtæka reynslu af útgerð, þannig að grunnurinn er sannarlega góður.

Sjálfur þekki ég ágætlega til innviða Samherja þar sem metnaður að gera betur og samvinna hefur alltaf verið leiðarstefið. Spor Kristjáns Vilhelmssonar verða vissulega vandfyllt en eftir okkar góða samstarf í gegn um árin veit ég að dyr hans munu alltaf standa mér opnar, rétt eins og hjá öllu öðru starfsfólki félagsins,“ er haft eftir Þorvaldi.

Deila: