Góð veiði á línuskipum

Deila:

Línuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, lönduðu báðir afla sínum í Grindavík í vikunni, að því er fram kemur á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Páll Jónsson landaði 126 tonnum á mánudag og Sighvatur um 80 tonnum á miðvikudag.

Jónas Ingi Sigurðsson, skipstjóri á Páli Jónssyni, segir túrinn hafa verið fínan. Hann segir að þeir hafi byrjað á að leggja tvær lagnir við Hvalbakann og þar hafi fengist góð blanda, um 60% aflans þorskur og um 40% ýsa. Síðan hafi verið haldið norður á Tangaflak og þar lagðar rúmlega tvær lagnir en þá hafi komin bölvuð bræla. Brælan hélt síðan alla leið heim til Grindavíkur. Hann segir menn mjög sátta enda hafi verið um fullfermi að ræða.

Aðalsteinn Rúnar Friðþjófsson, skipstjóri á Sighvati, segir einnig að aflabrögð hafi verið góð þótt veður hefði haft neikvæð áhrif á veiðiferðina. Hjá þeim hafi verið fjórar lagnir, tvær við Héraðsflóann og tvær í Norðfjarðardýpinu, og aflinn hafi verið að mestu þorskur. Hann segir að þetta hafi verið leiðinda brælutúr ef upphafið sé undanskilið en að siglingin til Grindavíkur hafi gengið ágætlega.

Bæði skipin héldu til veiða á ný fljótlega eftir löndun.

Deila: