Arctic Sea Farm fær leyfi í Trostansfirði

Matvælastofnun hefur ákveðið að bæta eldissvæðinu Trostansfirði við rekstrarleyfi Arctic Sea Farm hf. í Arnarfirði. Tillagan var auglýst frá 10. október til 10. nóvember og bárust tvær athugasemdir. Ákvörðunin er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála með eins mánaðar kærufresti.
Í greinargerð stofnunarinnar kemur fram að Matvælastofnun sjálf hafi árið 2022 undanskilið Trostansfjörð frá rekstrarleyfinu vegna umsagnar Hafrannsóknastofnunar um að svæðið væri innan við 5 km frá ósum Sunnudalsár og Norðdalsár. Arctic Sea Farm kærði þá ákvörðun og í framhaldinu voru teknar saman nýjar forsendur matsins.
Matvælastofnun telur nú fjarlægðarskilyrði reglugerðarinnar uppfyllt og að umsagnaraðilar hafi ekki gert athugasemdir sem gefi tilefni til synjunar. Athugasemdir sem bárust frá Fiskistofu og eiganda hluta Trostansfjarðar leiddu ekki til breytinga á niðurstöðu stofnunarinnar.
Viðbótin felur ekki í sér aukningu á hámarks lífmassa í firðinum og tekur þegar gildi. Rekstrarleyfið gildir áfram til 21. mars 2038.
