Fjörutíu ár frá stofnun LS

Deila:

Í dag, 5. desember 2025, eru 40 ár liðin frá stofnun Landssambands smábátaeigenda. Það var 5. desember 1985 sem trillukarlar víðs vegar af landinu komu til Reykjavíkur til að taka þátt í stofnfundi væntanlegra samtaka sinna, Landssambands smábátaeigenda. Fundurinn var haldinn í Rúgbrauðsgerðinni að Borgartúni 6 í Reykjavík. Til fundarins hafði boðað Arthur Bogason formaður undirbúningsnefndar, hann setti fundinn og hélt hvatningaræðu, og var síðar kosinn formaður Landssambands smábátaeigenda. Fundinum lauk með kosningu sjö manna stjórnar og jafnmargra til vara.

Um þetta er fjallað á vef LS, í tilefni afmælisins.

Þar segir að innan Landssambands smábátaeigenda séu nú hátt í 800 bátar sem eigendur róa í flestum tilfellum einir eða með einn til þrjá menn með sér. Stjórn sambandsins sé skipuð 17 aðilum. Heildarafli smábáta á síðasta fiskveiðiári hafi verið 76 þúsund tonn sem hafi skilað sér 34,3 milljörðum króna í aflaverðmæti, og útflutningsverðmæti var tvöföld sú upphæð.

Hlutur smábáta í heildarafla þorsks hafi verið 23%, í ýsu 16% og í steinbít 23%. Frá því segir að hæst hefur afli smábáta farið í 95 þúsund tonn á fiskveiðiárinu 2016/2017, en við stofnun sambandsins var afli smábáta um 20 þúsund tonn. Þorskur er mikilvægasta fisktegund smábáta og vegur um 68% af heildaraflanum. Aðrar tegundir sem skipta smábáta miklu máli eru ýsa, steinbítur, ufsi og grásleppa.

Á þessum tímamótum er minnt á tvo mikilvæga áfanga í starfi sambandsins. Annars vegar tóku 1. janúar 1991 gildi ákvæði laga um stjórn fiskveiða þar sem kveðið var á um að allir smábátar 6 brl. og stærri, alls 950 bátar, yrðu kvótasettir. Aðrir smábátar, 1.100 alls, fengu aðlögunartíma til 1. september 1994 til að ávinna sér aflaheimildir til kvóta í þorski, þar sem 2,18% leyfilegs afla í þorski skyldi skipt milli þeirra. Aflahlutdeild þessa kerfis, krókaaflamarks, til þorskveiðiheimilda er nú 17,5%. Hins vegar var Landssamband smábátaeigenda stofnað með kröfu um að handfæraveiðar yrðu frjálsar. Árið 2009 var komið á sérveiðileyfi til handfæraveiða, strandveiðum, og veiðikerfið var lögfest ári síðar. Til strandveiða á árinu 2025 voru ætluð 11.032 tonn af þorski, sem jafngildir 5,2% leyfilegs heildarafla, og alls 806 bátar stóðu að baki þeim afla.

Í lokin senda Kjartan Páll Sveinsson formaður og Örn Pálsson framkvæmdastjóri smábátaeigendum hamingjuóskir með félagið og hvatningu um að standa vörð um það áfram, eins og hingað til.

Deila: