Síldarvertíðinni lokið

Deila:

Barði NK kom til Neskaupstaðar í gærmorgun með síðasta síldarfarm ársins og var aflinn 760 tonn sem fékkst vestur af landinu. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu Síldarvinnslunnar þar sem rætt er stuttlega við Þorkel Pétursson skipstjóra um lokatúr vertíðarinnar.

Þorkell segir að ekki hafi verið neitt að kvarta yfir nema veðrinu. Hann segir að aflinn hafi fengist í fjórum holum í Kolluálnum og að magn í holi hafi verið frá 40 tonnum og upp í 380 tonn.

„Veðrið var fínt fyrstu 30 tímana á miðunum en síðan skall á kolvitlaust veður með átta metra ölduhæð. Það var ekkert annað að gera en að leita vars og við fórum í var undan Malarrifi. Veðrið þýddi frátafir fyrir okkur í eina 36 tíma,“ segir Þorkell.

Að óveðrinu loknu fundu þeir ágætis peðrur og tóku fjögurra og hálfs tíma hol sem gaf 380 tonn. Hann segir að á landleiðinni hafi þeir haldið sig sem næst fjörunni til að fá skjól af landinu þar sem það blés hressilega og veðrið var leiðinlegt. Nú sé síldarvertíðinni lokið og Þorkell segir að annað sé ekki hægt en að vera sáttur við hana. „Það gekk almennt vel að veiða en stundum þurfti að leita töluvert. Veður var líka gott á vertíðinni þar til undir lokin,“ segir Þorkell.

Deila: