Veiðigjald fyrir þorsk yfir 50 krónur

Deila:

Stjórnvöld hafa gefið út auglýsingu um veiðigjald eftir tegundum, sem gildir árið 2026. Fregnanna hefur verið beðið með nokkurri eftirvæntingu. Veiðigjald á landaðan afla frá og með 1. janúar til 31. desember 2026 nemur í krónum á hvert kílógramm óslægðs afla þeim fjárhæðum sem hér segir:

Þorskur 50,79
Ýsa 22,92
Ufsi 14,34
Karfi/gullkarfi 12,43
Langa 12,84
Keila 4,74
Steinbítur 13,89
Hlýri 13,69
Grálúða 43,50
Lúða 54,42
Skarkoli 31,42
Þykkvalúra/sólkoli 49,26
Langlúra 35,24
Sandkoli 14,57
Síld 4,37
Kolmunni 2,31
Makríll 26,17
Rækja/djúprækja 9,04
Djúpkarfi 16,82
Grásleppa 19,11

Veiðigjald fyrir hvern hval er sem hér segir: i) langreyður 76.907 kr., ii) hrefna 12.305 kr. Veiðigjald á sjávargróður er sem hér segir: 769 kr. á hvert landað tonn klóþangs, hrossaþara og stórþara (blautvigt).

Auglýsing þessi, sem sett er að fenginni tillögu embættis ríkisskattstjóra skv. 4. gr. laga um veiðigjald nr. 145/2018, sbr. einnig 8. gr. sömu laga, öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Undir þetta skrifar Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra.

Deila: